Nú byrjar fjörið!

Nú er komið nýtt ár og nú byrjar allt upp á nýtt aftur. Ég er búin að fá allar einkunnirnar og mér gekk bara rosalega vel! Hæðstu einkunnir sem ég hef fengið frá því að ég byrjaði!! Gott að sjá að allt erfiðið sem maður lagði á sig hafi borgað sig. Ég og dóttir mín höfðum það rosalega gott yfir jólin og komum aftur í borgina á nýju ári. Skólinn er byrjaður aftur og ég er aftur í 3 fögum, 12,5 gömlum einingum. Ég er í skólanum 3 daga í viku og 2 daga er ég ekki búin fyrr en um kl 17 og 1 dag kl 16:20. Það verður töluvert lesefni í vetur en ég var byrjuð í tveimur af þessum fögum  þegar ég þurfti að fara í veikindafrí og ég á glósur í mest öllu lesefninu í einu faginu. En engu að síður verður þetta mjög erfiður vetur. Eitthvað ætlar dóttir mín að bíða með það að fara að labba og fórum við því með hana til læknis um daginn. Það á eitthvað að athuga þetta, fara til sérfræðings og í sjúkraþjálfun. Maður verður nú alltaf eitthvað hræddur þegar börnin þurfa að fara til læknis Undecided En þetta kemur allt í ljós fyrr eða síðar. Þangað til næst, hafið það gott!!


Þetta gengur svona upp og niður!

Það er ýmislegt búið að gerast síðan ég skrifaði síðast. Ég er búin að skila þeim verkefnum sem ég átti að skila í nóvember og nú er bara að fara að snúa sér að næsta skrefi. Ég er að byrja á fræðilegri ritgerð um gagnrýni sem á að skila 12. des og svo er bara að fara að læra fyrir prófið sem er 18. des.  Var að skoða próftöfluna í Háskólanum og gat ekki betur séð að í minni deild (hugvísindadeild) sé algengara að prófin séu seinna í mánuðinum en hjá öðrum deildum sem er þá búin fyrr í sínum prófunum. En svona er það nú. Óheppnin er búin að elta litlu fjölskylduna okkar á síðustu vikum. Fyrir stuttu varð nýlegi bíllinn okkar allt í einu eineygður í annað sinn síðan við keyptum hann sem var í mars á þessu ári. Það eru 3 perur í hvoru framljósi og það var ekki nóg að bara ein færi heldur fóru allar í öðru ljósinu og ein í hinu! Skemmtilegt! Og þar sem þetta var ekki nóg þá gaf þvottavélin okkar endanlega upp öndina eftir margra ára trygga þjónustu og það er ekki hægt að gera við hana. Þannig að nú erum við að fara í þvottavélaleiðangur sem ætti nú að vera skemmtilegt! Eins og allir vita eru þvottavélar eitt af dýrustu tækjunum á heimilinu og ekki hægt að fá eina góða nema fyrir 100 þúsund í minnsta lagi. Allt gerist þetta á besta tíma í yfirstandandi kreppu!!!! En það eru nú að koma jól og því ekkert annað að gera en að finna það sem er jákvætt í lífinu og einblína á það.


Engin kreppa hér í gangi!

Ég ætla ekki að blogga um kreppuna, Davíð í Seðlabankanum eða meisið  á Hverfisgötunni, ég læt aðra um það. Ég hef líka nóg annað að gera. Kennslu fer að ljúka hjá mér þessa önn en það er samt fullt að gera. Ég á eftir að klára 1 lið af 3 í stóru heimaprófi og á að skila því á föstudaginn. Einnig á ég að skrifa ljóðadóm og svo pistill sem á að birtast á bokmenntir.is. En svo á næstu helgi ætla ég að taka mér 2 daga frí áður en næsta törn hefst svo. Í desember á ég að fara í 1 próf og skila 1 ritgerð og svo er ég komin í frí til 12. janúar. En þangð til næst!

Oooohhhh, trúi þessu ekki!!

Ég vona að það verði nú ekkert úr því að Skjár 1 hætti útsendingum. Þar eru allir mínir uppáhalds þættir á dagskránni, CSI New York, Law and Order SVU, House, Dexter, Californication. Ég væri frekar til í að borga nokkra þúsund kalla fyrir þessa stöð heldur en t.d. Stöð 2 þar sem er bara 1 þáttur sem ég vil ekki missa af.

Annars er ég að fara að skipuleggja næsta mánuð í náminu því að það verður brjálað að gera! Ég á ekki mikið eftir að sjá Helga og Karen allan mánuðinn og hluta af desember líka. En svo fær Helgi frí til að slappa af eftir átökin þegar ég og Karen förum vestur yfir jólin.


Skólinn

Ég hef ekki skrifað síðan í sumar!! Alltof langur tími. Ég er í 3 fögum og er búin að skemmta mér bara frekar vel. Það fer mikill tími í það að læra en þetta hefst allt á endanum. Núna er rosalega mikið að gera en ég er sem betur fer bara í einu prófi en það þarf auðvitað að vera 18. des!!! Ég er búin með öll verkefni nema 1 fyrir mánaðamót og svo í desember er 1 ritgerð og 1 próf. Við erum búin að ákveða það að ég og Karen verðum á Bíldudal yfir jólin. Það verður rosalega gaman en ég hefði auðvitað viljað hafa Helga hjá okkur líka. Já, núna er mikið fram undan í verkefnum, ritdómum, heimaprófum og fyrirlestrum. En þetta tekur allt enda!!

Sumarfrí!!

Ég og fjölskyldan mín erum búin að vera í sumarfríi fyrir vestan núna í næstum mánuð. Hér erum við í góðu yfirlæti hjá foreldrum  mínum og höfum það alveg rosalega gott. Dóttir okkar, sem er núna að verða 8 mánaða, hefur stækkað og dafnað vel hérna í sveitinni. Hún er farin að sitja sjálf, byrjuð að segja mamma og pabbi og afi og amma á sínu barnatungumáli og hún er líka búin að fá 2 tennur!! Við höfum fengið alveg frábært veður og gæti ekki liðið betur. Við eigum svo von á fleiri ættingjum á hingað um næstu helgi og þá verður nú fyrst kátt í hölinni. Systir mín er að koma með sínar tvær stelpur og bróðir minn og hans kona eru líka að koma. Við stoppum alla vega út næstu viku og þá  verður haldið aftur til borg óttans. Það verður spennandi að sjá hvernig haustið og veturinn verður hjá okkur. Ég er að fara aftur í háskólann í haust og maðurinn minn er líka að fara í skóla. Hjá mér er kennt á daginn og hjá manninum mínum á kvöldin og um helgar. Þessi stundarskrá hjá okkur bjargar okkur frá hinni ómögulegu leit að dagmömmu sem er bara gott. Það færi hvort sem er stór hluti af námslánunum mínum í að borga henni. Þar sem ég verð bara sennilega 2 daga í viku í skólanum ætti þetta að reddast alveg. En sem sagt, spennandi tímar framundan. Þangað til næst!!


Gott að eiga góða að!

Ég hef lítið verið að blogga síðustu daga og hef verið bara frekar andlaus í þeim efnum. Satt að segja  er ég búin að vera veik og lítið getað sinnt öðru en daglegum störfum og suma dagana ekki einu sinni þeim. En það er gott að eiga góða að. Maðurinn minn yndislegi hefur verið svo góður við mig og leyft mér að sofa lengur ef ég er veik og vaknar hann með dóttur okkar á morgnana. Hún vaknar yfirleitt á milli 6 og 7 og vil fá að drekka og svo er komin dagur hjá henni og okkur sem sagt líka. Já, maður er snemma farin að stjórna heiminum :) Sjúkdómur minn hefur eitthvað verið að versna undan farnar vikur og er ég núna að bíða eftir að læknirinn minn komi heim frá útlöndum og geri vonandi eitthvað fyrir mig. En á meðan verð ég að taka lífinu með ró og eyða tíma með dóttir minni og manninum mínum. Það er allra meina bót!!

Vatnsmýrin er fitandi!

Í gær var haldið eitthvað málþing í Iðnó um m.a. að samgöngur á höfuðborgarsvæðinu hefðu bein áhrif á versnandi lýðheilsu höfuðborgarbúa. Að skortur á útivistarsvæðum hefði þau áhrif að við hreyfðum okkur minna og að áherslan á einkabílin í samgöngum höfðuborgarsvæðisins væru þess valdandi að við færum síður hjólandi, gangandi eða hlaupandi okkar ferða.  Auðvitað barst í tal Vatnsmýrin og hve mikið svæði til útivistar væri þar í boði ef bara flugvöllurinn færi í burtu. Flugvöllurinn, sem er aðal samgönguæð landsbyggðarinnar, á sem sagt að víkja fyrir útivistarsvæði fyrir of feita borgarbúa sem færu hvort sem er ekki á þetta svæði þó að þeir fengu borgað fyrir það. Því að það er ekki skortur á útivistarsvæðum sem veldur því lýðheilsa borgarbúa versnar vegna þess að við þyngjumst og þyngjumst, það er einfaldlega bara vegna leti. Við nennum ekki að fara það sem við gætum farið labbandi, við veljum alltaf bílinn því að hann er fljótari, þægilegri og auðveldari. Ég sá svo viðtal við Dag B. Eggertsson í sjónvarpinu eftir þingið og þar komust hann og fréttamaðurinn að þeirri niðurstöðu að í rauninni væri Vatnsmýrin fitandi!! Já, það er alltaf auðveldara að koma sökinni yfir á aðra í staðinn fyrir að taka ábyrgðina sjálfur. 


Harrison og ,,krakkinn,,.

Ég hef haldið mikið upp á Indiana Jones myndirnar síðan ég var krakki og get horft á þær aftur og aftur. Það er kannski vegna þess að ég get ekki hugsað mér að þessi ,,krakki,, taki við af Harrison.    Ég efast um að hann muni passa eins vel í hattinn og Harrison, valda svipunni eins vel og Harrison eða segja kaldhæðnislegu brandarana eins vel og Harrison. Ekki misskilja mig, Harrison er ekki í einhverju uppáhaldi hjá mér sem leikari heldur er hann hinn eini sanni Jones!
mbl.is Til í þá fimmtu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú skal ég hundur heita!

Þar sem ég læt oft aðra sjá um það að elda fyrir mig Whistling fór ég út á Kjúklingastaðinn í Suðurveri í gærkveldi. Þar er oft mikið að gera og þurfti ég því að standa dágóða stund í röð sem ég læt mig nú yfirleitt hafa. Þegar ég er að bíða er ég að stara á manninn sem er fyrir framan mig í röðinni, já ég veit að það er dónaskapur að stara en ég bara réð ekki við mig. Það sem ég tók sérstaklega eftir var það að í fangi hans var lítill hundur! Þetta er einfaldlega eitt af því sem ég skil bara alls ekki. Heldur fólk virkilega að bara af því að hundar komist fyrir í fanginu á manni séu þeir ekki lengur hundar heldur bara eins og hver annar fylgihlutur?  Að koma með dýr inn í verslanir aðrar en dýrabúðir myndi bara alls ekki hvarfla að mér. Kjúklingur með hundahárum er í mínum huga ekki girnilegur matur. Vinkona mín á 40 kílóa Schaffer-hund og ég stórefast um að hún yrði velkomin þarna inn með hann í bandi.       Í mínum huga er þetta alveg sambærilegt, hundur er alltaf  hundur og hundar eiga ekki að fylgja eigendum sínum inn á svona staði né í verslanir. 


Næsta síða »

Um bloggið

Siggan

Höfundur

Siggan
Siggan
Móðir, unnusta, nemi og svo margt fleira!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband