Ekki-fréttir?

Ég væri alveg til í að bara einn dag væru auðar forsíður, sérstaklega núna þegar allar fréttir virðast vera slæmar fréttir. Heyrði það að íslendingar hafi ekki verið jafn svartsýnir í 6 ár, kannski myndi það breytast eitthvað ef fólk hefði ekki fyrir augunum slæmar fyrirsagnir í blöðum alla daga. Gerum bara eins og slóvakarnir og höfum bara ekki -fréttir á forsíðum allra blaða. Eða eru þeir kannski bara að reyna að gleyma tapi landsliðsins í knattspyrnu gegn því íslenska í gærkveldi á sama tíma og við erum að reyna að gleyma falli íslensku krónunnar svo við getum haldið áfram að eyða eins og geðsjúklingar?
mbl.is Auðar forsíður til að mótmæla fjölmiðlafrumvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er með hárið á Dabba?

Ég var að horfa á fréttir Stöðvar 2 í kvöld og sá þar frétt um stýrivextina og þar fór auðvitað fremstur í flokki seðlabankastjórinn sjálfur, Davíð Oddsson. Ég hef ekki séð hann Dabba í svolítinn tíma og ég var bara ekki frá því að hann væri eitthvað breyttur. Ég var lengi að koma því fyrir mér en svo rann upp fyrir mér ljós, það var hárið!! Hárið á honum hafði á einhvern furðulegan hátt misst sjarmann sinn, þ.e.a.s. krullurnar. Hárið á honum var orðið rennislétt, eins og hann væri ný kominn úr lagningu! Hvað er í gangi? Er hann aftur kominn með nýjan stílista eða eitthvað svoleiðis? Hæfir það ekki seðlabankastjóra að vera með stjórnlaust hár á þessum síðustu og verstu tímum? Ég segji bara fyrir mitt leyti að ég kunni betur við hann með krullurnar Wink

Já, ég held að ég fari bara á veiðar!

Íslensk spennuþáttaröð hóf göngu sína á RUV í kvöld. Þátturinn sem nefnist Mannaveiðar er einn af mörgum nýjum afurðum í íslenskri þáttagerð. Ég get ekki annað sagt en að ég hafi haft gaman af, nógu gaman til þess að horfa á næsta þátt og ég vona að ég verði ekki fyrir vonbrigðum með þá ákvörðun. Forvitni mín hefur verið vakin og ég held að ég fari bara á veiðar!

Síðasti dagurinn til að versla, EVER!

Í gengum árin hafa páskarnir verið heilög hátíð og sú var tíðin sem engar búðir, engir veitingastaðir og eiginlega bara ekkert var opið. Eitthvað er þetta að verða frjálslegra og t.d. 10-11, Aktu Taktu og N1 eru með opið alla páskana. Föstudagurinn langi er í raun sá dagur sem minnst af búðum og svoleiðis er opið. Fólki finnst þetta samt sem áður vera langur tími því að það var örtröð á þessu stöðum í allan dag. Það mætti halda það að þetta væri síðasti dagurinn EVER sem eitthvað væri opið. Það er eins og fólk sé að búa sig undir heimsendir og að þetta sé síðasti dagurinn sem það hefur til að versla sér nesti til að taka með til helvítis, ég veit, kannski ekki við hæfi að skrifa svona á þessari hátíð en þetta er staðreynd samt sem áður. Og það sem fólk virðist líka vera búið að gleyma að það er enginn heimsendir í nánd,  þó að það sé einhver kreppa að ganga yfir landið, og að á morgun geta allir byrjað daginn á því að fara í Kringluna, farið út að borða bæði í hádeginu og um kvöldið og í bíó bæði undan og á eftir.

Fermingar, fótbolti og páskaegg

Nóg verður að gera hjá okkur yfir hátíðina. 2 fermingarveislur eru í dag, nóg af fótbolta um helgina og ég held að við eigum eftir að kafna á því að borða páskaeggið nr. 7 sem bróðir minn gaf okkur. Annars finnum við lítið fyrir þessu fríi því að við erum ennþá í fæðingarorlofi og þá er eins og það sé endalaus laugardagur. Eina sem minnir mann á það að dagarnir líða eru hinir mismunandi þættir sem eru á mismunandi dögum. Ég veit að það er mánudagur þegar ég sé að C.S.I. er á Skjá 1, ég veit að það er miðvikudagur þegar ég sé dömurnar í ANTM á skjánum og fleira og fleira. Um páskana á þetta allt eftir að brenglast og ég á eftir að rugla dögunum ennþá meira. En hvað um það. Góður matur, vonandi góður fótbolti og súkkulaðið mun flæða út um eyrun á manni. Gleðilega hátíð allir saman!

Samgöngumálin og óþarfa þorpin

Eftir að ég sinni dóttur minni á morgnanna sest ég niður og les blöðin, ef þau hafa þá skilað sér þann morguninn. Í morgun var ég svo heppin að bæði Fréttablaðið og 24 stundir bárust inn um lúguna hjá mér. Í Fréttablaðinu rakst ég á innsenda grein sem staðsett var á síðu sem er kölluð skoðun. Þar var um að ræða grein um samgöngumál eftir Jón Otta Jónsson. En það var nú ekki það sem vakti athygli mína heldur var það fyrirsögnin ,,Veruleikafirrtir Vestfirðingar,,. Þessi grein er vægast sagt áhugaverð lesning. Ég hélt fyrst að fyrirsögnin væri einungis til þess að fá mann til að lesa greinina en hefði svo sem ekkert að gera með innihald greinarinnar. En þar skjáltlaðist mér. Jón Otti kemur í þessari grein fram með ýmsar áhugaverðar fullyrðingar sem ég hélt að væru ekki sæmandi vel upplýstu fólki. Oft hef ég nú heyrt þá skoðun að landsbyggðin sé heimtufrek á það fé sem er úthlutað til samgöngumála hverju sinni og að það sé ekki réttlætanlegt að úthluta svona miklu fé til byggða sem eru fámennar. En fullyrðingar Jón Otta kom mér verulega á óvart. Hann segir að t.d. byggðir eins og Bolungarvík, Flateyri, Súðavík og Suðureyri séu ,,óþarfa þorp,, og hafi því ekki forgang í samgöngubætur eins og gangagerð. Þorpin hafi verð þörf í gamla daga þegar hagstætt var fyrir sjómenn að búa sem næst fiskimiðunum. En eftir því sem tæknin breyttist hafi ekki verið nauðsynlegt að búa þarna og því hafi allt þetta fólk bara átt að flytja til Ísafjarðar þar sem góð höfn með nýtísku bátum voru staðsett. Jón Otti heldur áfram og segir að þessar samgöngubætur séu ekki réttlætanlegar vegna þess að þær séu aðeins til þess gerðar að ,,viðhalda óþarfa byggð með 500 manns,,. Hann segir fólk smáþorpanna vera með þvílíka heimtufrekju þegar þeir fari fram á ,,jarðgöng og snjóflóðavarnir,,. Já, guð forði okkur frá því að fólk sé varið fyrir náttúruöflunum, ég hélt að ég þyrfti ekki að minna á að fyrir aðeins 13 árum létust 35 manns á 10 mánuðum í snjóflóðum fyrir vestan. Já, frekjan í fólkinu að vilja forðast slíkan harmleik. En fólk getur svo sem sjálfum sér um kennt, er það ekki Jón Otti, að búa á þessum stöðum sem eru hvort sem er ,,óþarfa þorp,,.        Ég gæti alveg eins komið fram með eina dæmisögu og sagt að Breiðholtið sé óþarfa byggð í dag.    Að það hafi verði þarft á sínum tíma að koma með ódýrari íbúðarkosti fyrir láglaunafólk en að þegar hagur þeirra batnaði hafi það bara átt að flytja í burtu. Ég gæti því haldið því fram að ekki þyrfti lengur að halda úti þessari óþarfa byggð og því ætti bara að hætta að malbika göturnar upp í Breiðholt. Það sem Jón Otti er ekki að átta sig á er að fólk ræður því hvar það býr. Í Breiðholtinu eins og annars staðar kemur fólk og fer, það er þeirra val. Sama dæmið er uppi á teningnum á landsbyggðinni. Og hvern telur hann sig vera að halda því fram að sum þorp séu óþörf, er það hans að ákveða það? Ekki veit ég hvar hann Jón Otti býr en ekki gæti ég ímyndað mér að hann yrði sáttur við að ég myndi t.d. halda því fram að hans hverfið væri óþarft og því ekki þjóðhagslega hagkvæmt að viðhalda byggðinni og að hann ætti bara að drífa sig í burtu. Mér finnst margt í þessari grein hreinlega ekki upplýstri mannsekju sæmandi, að halda slíkri vitleysu fram og ekki vildi ég vita hvað hann myndi segja um sunnanverða Vestfirði og hver óþarft mitt þorpið er.

 


Færeyjar here I come!

Ég hef alvarlega verið að velta því fyrir mér hvort að ég ætti ekki bara að gerast tónlistarmaður, flytja til Færeyja og athuga hvort að ég verði ekki tilnefnd til færeysku tónlistarverðlaunanna. Ekki veit ég hvort að ég vekji jafn mikla lukku úti í Færeyjum eins og Eivör, sem ég persónulega kann ekki að meta, vekur hér á Íslandi en það má nú liggja milli hluta.                                                                                               


mbl.is Færeyingar gera innrás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sækja eða senda?

Eins og oft áður vorum við litla fjölskyldan á síðasta snúning með kvöldmatinn í gærkvöldi og ákváðum því að láta senda okkur mat heim. Mig langaði í pizzu og var búin að heyra af nýjum stað niður á Grensásvegi og ákvað að athuga málið. Ég fann heimasíðuna þeirra á netinu og leist rosalega vel á matseðilinn. Ég var farin að slefa á lyklaborðið á tölvunni yfir matseðlinum en munnurinn skyndilega þornaði upp þegar ég rak augun í það að ef ég vildi fá pizzuna senda heim til mín þyrfti ég að punga út auka 550 krónum!! Ég hafið hugsað mér að búa til mína eigin pizzu eins og boðið er upp á matseðlinum og samkvæmt útreikningum mínum kostaði pizzan, með 3 áleggstegundum, heim til mín hátt í 3000 kr! Ég veit að bensínverðið hefur rokið upp úr öllu valdi undanfarið en mér finnst þessi aukakostnaður þrátt fyrir allt ekki réttlætanlegur því ég geri ráð fyrir því að ennþá sé senst með fleiri en eina pizzu í einu. Einnig hélt ég að heimsendingargjald í þessum iðnaði heyrði sögunni til og þar sem það tíðkaðist ennþá væri það meiri en helmingi minna en þetta gjald á umræddum pizzastað.      Ef forsvarsmenn þessa staðar réttlæta þetta gjald með hækkandi bensíngjaldi vil ég sjálf fá nokkra lítra í kaupæti því að þetta finnst mér fáránlega hátt gjald fyrir heimsendingu.

Hleypur og hleypur og hleypur!

Ég horfði auðvitað á mína menn spila úti á Ítalíu í gærkveldi og fór að spá í svolitlu sem ég hef áður velt fyrir mér. Í leikjum í meistaradeildinni er alltaf sýnt þegar leikmönnum er skipt útaf, eða við önnur tækifæri, hve mikið þeir hafi hlaupið meðan á leiknum stóð. Sýnd er nærmynd af móðum og másandi leikmönnum þegar þeir yfirgefa völlinn og neðst á skjánum stendur t.d. 7896 m. Þetta er ekki mælt í kílómetrum heldur metrum. Ætli það sé vegna þess að vegalengdin virkar lengri ef hún er í þúsundum metra heldur en í kílómetrum? Og svo að öðru, hvernig reikna þeir þetta út? Ég er nú ekki tæknivæddasta manneskja sem ég þekki Wink og auglýsi hér með eftir einhverjum sem veit hvernig þetta er gert.

Kinnalitur, brúnnkuklefar og karlmennska

Íslendingar hafa löngum verið frægir fyrir það hve mikið er hér horft og hlustað á fréttir.  Alltaf er eitthvað í fréttum meira að segja þegar um þessa frægu gúrkutíð er að ræða. En hvað með það,      þrátt fyrir fréttir og ekki-fréttir er eitt sem alltaf vekur athygli mína í fréttum Stöðvar 2 og það er förðunin, og þá sérstaklega föðrun karlkyns fréttamannanna. Ekki veit ég það hvort að hið illræmda brúnnkuæði landans hefur gripið um sig á Stöð 2 en mér finnst einhvern veginn þessir karlar alltaf vera hálf appelsínugulir í framan. Kannski er það lýsingin í stúdíóinu sem gerir það að verkum að ég grýp oft til fjarstýringarinnar af sjónvarpinu og ætla eitthvað að fara að fikta í stillingunum á litnum. En þá tekur kannski Edda fréttakona við og sé ég að hún er ekki appelsínugul og sannfærist þá um það að sjónvarpið mitt sé ekki bilað. Ég ef nú nokkrum sinnum sé þessa fréttamenn á förnum vegi og ekki get ég sagt að þeir hafi eitthvað stungið í stúf í margmenninum sökum húðlitar síns. Þeir falla bara ágjætlega inn í hinn grámuggulega íslenska hversdagsleika.  Ætli þessir menn viti hve fáránlega þeir líta út og ef þeir vissu það ætli þeir myndu eitthvað gera í því eða eru þeir eins og margur íslendingurinn fastur í viðjum brúnnkuklefans?  Eitt enn verð ég að nefna og það er sérstaða eins fréttamannsins á Stöð 2. Hann er nú yfirleitt alveg jafn appelsínugulur og hinir en það er eitt sem hann hefur um fram hina og það er sú staðreynd hver rjóður hann er alltaf í kinnum. Aðeins tvennt kemur til greina. Annað hvort gerir hann eins og sumar gamlar konur gera til að fríska upp á sig, klípur í kinnarnar til að virka rjóðari, eða hann er einfaldlega með kinnalit!! Logi minn, ég held að þú þurfir að eiga alvarlegt samtal við förðunarfólkið þitt ef þú villt ekki vera með meiri kinnalit en þín ágjæta kona Svanhildur.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Siggan

Höfundur

Siggan
Siggan
Móðir, unnusta, nemi og svo margt fleira!
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband