Færsluflokkur: Bloggar

Ætli Sturla viti af þessu?

Hvað eru þetta margir þúsund kallar? Hvað ætli að magnið dugi á meðal vörubíl? Ætti ekki að vera erfitt reiknidæmi nema fyrir þær sakir að verðið á díselolíunni er alltaf að hækka og hækka.
mbl.is Olíuleki á gatnamótum Borgartúns og Höfðatúns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei, hættu nú alveg!!

Fyrsta færslan mín á þessari bloggsíðu minni fól í sér lýsingu á för minni um hið meingallaða kerfi Fæðingarorlfossjóðs.  Ég var ólétt og ætlaði eins og hver önnur manneskja í þeirri stöðu að sækja um fæðingarorlof en á dauða mínum átti ég von á frekar en þeirri martröð sem ég lenti seinna í. Martröð þessi endaði með því að ,þrátt fyrir að ég hafi verið í fullu námi síðan haustið 2005 og í vinnu á sumrin og með náminu, að ég fékk aðeins það sem kallað er fæðingarstyrkur. Fæðingarstyrkur er sú upphæð kölluð sem fólk sem er hvorki í námi né úti á vinnumarkaðnum er að fá í sínu fæðingarorlofi. Sú mikla upphæð eru heilar 43.899 krónur á mánuði í 6 mánuði!! Vegna þess að ég þurfti að minnka við mig námið á meðgöngunni og seinna að hætta að vinna vegna veikinda þá var alveg eins og seinustu 2 ár hafi þurrkast út. Því að bara vegna þess að á 6 mánaða tímabili á seinustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barnsin var ég ekki með nógu mikið nám né nógu mikla vinnu (vegna veikinda minna) þá var það bara túlkað eins og ég hafi bara verið heima hjá mér og gert ekki neitt. Engar undanþágur voru leyfðar og ég varð að gjöra svo vel að láta mér þessa upphæð að góðu verða. Það var ekki hægt að fara bara 6 mánuðum lengra aftur í tímann þegar ég var í 100% námi og þá hefði ég fengið fæðingarstyrk námsmanna, sem er helmingi meiri en fæðingarstyrkurinn, eða aðra 6 mánuði í viðbót þegar ég var í 100% vinnu og þá hefði ég fegnið 80% af laununum mínum í fæðingarorlofi sem launþegi. Nei, engar undanþágur, en mér var meira en velkomið að kæra úrskurðinn en fékk samt að vita það að niðurstaðan yrði alltaf sú sama og á meðan fengi ég engar greiðslur. En svona endaði þessi martröð sem sagt. Ég hélt mig vera lausa úr klóm kerfis Fæðingarorlofssjóðs en komst að öðru. Fæðingarorlofi mínu er nú lokið og ætlaði ég mér að fara aftur að vinna. Ég gat því miður ekki snúið aftur til fyrri starfa því að á þeim vinnustað er unnið í vaktavinnu. Ég ákvað því í sakleysi mínu að fara og sækja um atvinnuleysisbætur ef ske kynni að ég fengi ekki aðra vinnu strax. Því að engin getur lifað á loftinu sama hvað hver segir. Ég fékk fljótlega að vita það í viðtali mínu við þjónustufulltrúa í Vinnumálastofnun að það væru ekki miklar líkur á því að ég hefði rétt á atvinnuleysisbótum. Og ástæðan? Jú, hún var sú að vegna þess að ég hafi verið á fæðingarstyrk og að styrkur væri ekki laun og þá hefði ég ekki rétt á bótunum!! Það er sem sagt búið að ákveða það að fólk sem þiggur fæðingarstyrk frá Fæðingarorlfossjóði ætli sér ekki að fara að vinna eftir orlofið. Það eru ekki bara heimavinnandi húsmæður sem fá fæðingarstyrk eins og mál mitt sannar. Ég er að fara aftur í nám í haust og þarf að sjálfsögðu að halda áfram að borga mínar skuldir eins og annað fólk. Ekki veit ég ennþá hvernig þessi martröð endar en ég læt ykkur vita þegar ég vakna. Sæl í bili.

Fuglafóbía af verstu gerð!

Þessar staðreyndir eru ekki til þess að mér sé eitthvað betur við þennan óþolandi fugl. Ég þróaði mér mér fuglafóbíu á mínum yngri árum vegna hræðslu minnar við þessa fugla og á ennþá meira að segja erfitt með að fara niður á Tjörn að gefa fuglunum.  Þar sem ég bjó fyrir vestan var kríuvarp rétt fyrir neðan húsið okkar en þegar ég var mjög ung átti ég ekki við þetta vandamál að stríða heldur þróaðist það þegar ég varð eldri. Til þess að komast út á íþróttavöll þar sem ég æfði íþróttir á sumrin varð ég að fara í gegnum svæði sem kríurnar töldu vera í sinni eign og vörðu með öllum ráðum. Eitt skiptið þegar ég var á leið heim af vellinum elti ein krían mig langar leiðir. Þegar ég segji langar leiðir er ég ekki að meina einhverja 100 metra heldur allt að kílómeter eða alla leiðina heim til mín inn í bænum (ég bjó rétt við mörk bæjarins) Eftir þennan atburð varð ég aldrei söm. Ég gat ekki farið fótgangandi út úr bænum og geri ekki enn yfir sumartímann. Yfir bæjarmörkin báðu megin fer ég ekki nema í bíl. Svo er það gólfvöllurinn. Nokkrum sinnum kom það fyrir að ein krían tók sig til og verpti á miðjum vellinum og varði auðvitað sitt með kjafti og klóm. Völlurinn í mínum heimabæ er ekki þannig að kríurnar séu hluti af honum eins nokkrir vellir hérna fyrir sunnan þannig að meðan reynt var að finni hreiðrið og eyðileggja það varð ég stundum að sleppa nokkrum holum því að ég treysti mér ekki inn á yfirráðarsvæði kríunnar. Hér í borg óttans er nú ekki eins mikið um að maður þurfi að vera á yfirráðarsvæði þessa hryllilega fugls en fóbía mín þróaðist fljótt yfir í fóbíu fyrir öllum fuglum meira og minna. En þar sem návígi við fugla er ekki eins mikið hér og fyrir vestan þarf ég sjaldan að hafa áhyggjur. Hafa áhyggjur af því að gera mig af fífli þegar ég fleygji mér í jörðina öskrandi og grátandi og fást svo aðeins til þess að standa upp þegar búið er að fullvissa mig um að öndin sem var við fætur mér sé farin!! En svona er þetta bara. Þetta er minn kross að bera!Crying
mbl.is Íslenskar kríur leggja árlega að baki 30-40 þúsund kílómetra ferðalag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég ætla ekki að vera með

Ég ákvað það að ef ég myndi blogga í dag þá myndi ég ekki blogga um atburð dagsins og ætla að standa við það. Ég er hvort sem er ekki í stuði til þess og ætla ég að enda þetta með því að segja ykkur það að aftur komu fríblöðin bæði inn um lúguna hjá mér í dag. Ég held að ég verði bara að hringja og athuga hvað þeim gengur til með þessu að bera út blöðin bara tvo daga í röð! Eitthvað gruggugt við þetta allt saman!
mbl.is Mótmælin fóru úr böndunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undur og stórmerki!!!

Í morgunsárið, eða kl 6:50 vakti litla drottningin okkur, (ég er sú stóra), því að hennar mati var komin dagur. Við foreldrarnir stauluðumst á fætur og ég fór fram í eldhús að hita pelann og eftir það fór ég fram í gang og viti menn!! Á gólfinu lágu bæði Fréttablaðið og 24 stundir. Í dag fengum við bæði fríblöðin inn um lúguna og það hefur ekki gerst hér á bæ í margar vikur. Þvílíkur dýrðardagur! Ég gat sest niður þegar ég var búin að gefa litlu drottningunni pelann sinn og lesið blöðin í mestu makindum, bæði blöðin!! Já, eins og þið sjáið þá þarf lítið til að gleðja mig þessa dagana.

Erum ekki að standa okkur!!

Þetta hlýtur að vera eitthvað tímabundið bara. Við komumst fljótt aftur í fyrsta sæti Grin
mbl.is Ekki lengur skuldugasta þjóð í heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sami, Gerrard og hvað þeir heita nú allir :)

Þvílíkur leikur!! Ég hef ekki verið svona stressuð yfir fótboltaleik síðan ég horfði á Liverpool spila við AC Milan um meistaradeildarbikarinn í Istanbul árið 2005! Ekki skemmdi það fyrir að uppáhalds leikmaðurinn minn í Liverpool liðinu, Sami Hyypia, skoraði þetta líka stórglæsilega mark. Það var ekki annað hægt en að fá hina frægu gæsahúð þegar stuðningsmennirnir sungu You Never Walk Alone, bæði fyrir og eftir leik, ég hefði gefið mikið fyrir að hafa verið þarna. En það verður að bíða betri tíma og vona ég þá að Anfield verði enn til staðar þegar ég loksins kem mér út að sjá leik.
mbl.is Liverpool og Chelsea sigruðu og mætast í undanúrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Siggan

Höfundur

Siggan
Siggan
Móðir, unnusta, nemi og svo margt fleira!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband